Skilmálar Álkerfi.ehf


Almennir skilmálar

1. ​Vörur frá Álkerfi ehf. eru seldar með ábyrgð samkv. lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

2. ​Ekki er tekin ábyrgð á vörum ef bilun, skemmdir eða galla má rekja til rangrar meðferðar, umgegni eða rangrar uppsetningar þriðja         aðila.

3. ​Allur afhendingartími er áætlaður. Álkerfi ehf. ber enga ábyrgð eða kostnað ef afhendingartími reynist lengri en upphaflega var ​      ​áætlað.

4. ​Engin ábyrgð er á þéttilistum milli glerja í svalalokunum, gluggum eða hurðum.

5. ​Kaupandi ber ábyrgð á að öll tilskilin leyfi séu til staðar og ber sjálfur allan kostnað vegna þeirra.

6. ​Dráttavextir reiknast eftir eindaga frá og með gjalddaga, samkvæmt gildandi reglum um vexti og verðtryggingu.

7. ​Ábyrgðin gildir einungis ef varan er uppsett af Álkerfi ehf. eða aðila sem fyrirtækið hefur samþykkt sérstaklega.

8. ​Allar seldar vörur eru afhentar við verksmiðjudyr, nema annað sé samið sérstaklega.

9. ​Ef framkvæmd er stöðvuð eða hætt eftir að kostnaður hefur stofnast, áskilur Álkerfi ehf. sér rétt til að halda eftir fjárhæð sem ​  ​nemur þeim kostnaði. Sú fjárhæð er færð sem inneign ef framkvæmd hefst innan árs frá upphaflegri áætlun.

10. ​Framleiddar vörur má geyma í allt að eina (1) viku í húsnæði Álkerfis án kostnaðar. Eftir þann tíma verður gefinn út reikningur,    ​      ​jafnvel þótt vörurnar hafa ekki verið afhentar.

11. ​Kaupandi ber ábyrgð á að vörurnar uppfylli gildandi byggingar- og öryggisreglur, m.a. varðandi öryggisgler, brunavarnir, ​          loftræstingu, fallvarnahæð og önnur viðeigandi ákvæði.

12. ​Ef vörur eru settar upp í umhverfi þar sem málmhlutar eða festingar geta orðið fyrir áhrifum sjávarsalta eða tærandi efna, ber ​    ​kaupandi að upplýsa Álkerfi ehf. fyrir pöntun. Sé það ekki gert getur ábyrgð fallið niður.

Afhending og flutningur

1. ​Afhending fer fram samkvæmt samkomulagi, að jafnaði með flutningsbifreið og með kerru allt að 13,6m kerru.

2. ​Kaupandi skal tryggja að losunstaður hafi viðeigandi aðkomu, búnað og pláss fyrir afhendingu.

3. ​Óski kaupandi eftir að sérflutning með lyftu eða krana er það gert gegn aukagjaldi.

4. ​Vörur eru pakkaðar á plásssparandi hátt til að lágmarka flutningskostnað. Óski kaupandi eftir sérpökkun þarf að koma fram áður en ​pöntun er staðfest.


Hugsanlegur aukakostnaður og atriði undanþegin ábyrgð

1. ​Kostnaður vegna flutnings efnis innanlands, verkpalla, lyftubúnaðar eða annars búnaðar sem þarf til uppsetningar vörunnar fellur á ​kaupanda.

2. ​Ef verkstaður grefst gistingar eða uppihalds starfsmanna er sá kostnaður á ábyrgð kaupanda, nema um annað sé samið. 

3. ​Ferðatími er ekki innifalinn í tilboði nema annað sé tekið fram.

4. ​Ef svalir eru klæddar með PU klæðningu vegna svalalokunar, er átt við klæðningu að innanverðu undir svalalokunina.

5. ​Rennur á sólskála þarf að panta sérstaklega nema það sé skýrt tekið fram í tilboði.

6.  ​Ef rennur eru afhentar með sólskálum fylgir stuttur niðurfallsstútur í öðrum enda, en þær eru ekki tengdar við rennukerfi hússins.


Ágreiningur

Komist aðilar ekki að samkomulagi vegna samnings eða viðskipta skal málið fyrst reynt leyst með samningaviðræðum. Takist það ekki skal höfða mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness.


Gildistaka

Þessir skilmálar taka gildi 1. október 2025 og gilda þar til ný útgáfa kemur í þeirra stað.

Álkerfi ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum sínum án fyrirvara.

Nýjustu og gildandi skilmálar eru alltaf aðgengilegir á heimasíðu fyrirtækisins www.alkerfi.is/skilmalar og gilda þeir skilmálar sem þar eru birtir á hverjum tíma.


Heildarlausnir fyrir svalir og önnur opnanleg rými – svalalokun, álskálar, svalagangar og handrið – allt í þínum stíl og með áherslu á gæði.

„Álkerfi – hrein hönnun, sterk bygging